Vöruhús er lokað í dag, mánudaginn 31.3. vegna veikinda. Vinsamlegast hafið samband í s: 588-0200 fyrir frekari upplýsingar.

Persónuvernd

Persónuverndaryfirlýsing Eirvíkur

Öflug persónuvernd er Eirvík mikið kappsmál og við leggjum mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir „persónuverndarlög“).

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Eirvík ehf., kt. 640394-2509, Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík (hér eftir „Eirvík“ eða „við“ ), stendur að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“). 

Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar: 

  • Versla vörur í verslun okkar eða netverslun
  • hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla
  • heimsækja heimasíðu okkar, www.eirvik.is eða samfélagsmiðlasíður okkar
  • Þegar þú útbýrð aðgang og skráir þig inn á „mínar síður“ á heimasíðu okkar 

Hvaða persónuupplýsingum safnar Eirvík um þig? 

Eirvík leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. 

Eirvík vinnur, eins og við á hverju sinni,  einkum eftirfarandi persónuupplýsingar:

  • Auðkennis- og samskiptaupplýsingar, s.s. nafni og kennitölu, heimilisfangi, tölvupósti, símanúmeri
  • Tæknilegar upplýsingar, s.s. IP tölu
  • Greiðsluupplýsingar, en einungis upp að því marki sem nauðsynlegt er til að gera viðeigandi greiðslufyrirtæki kleift að vinna greiðsluna. Slíkar upplýsingar eru ekki geymdar af Eirvík
  • Samskipti þegar einstaklingar hafa samband við okkur

Eirvík vinnur ekki persónuupplýsingar sem flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarlögum né upplýsingar um sakfellingar í refsimálum eða refsiverða háttsemi.

Í hvaða tilgangi vinnur Eirvík persónuupplýsingar um þig?

Eirvík vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:

  • Afgreiða kaup á vörum, hvort sem er í gegnum verslun eða netverslun
  • Stunda markaðssetningu á samfélagsmiðlum
  • Bregðast við fyrirspurnum frá einstaklingum 
  • Sinna samskiptum við tengiliði fyrirtækja
  • Uppfylla lagaskyldu sem hvílir á fyrirtækinu

Þegar þú notar heimasíðuna okkar www.eirvik.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, þ.e. IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu Eirvíkur. Hér má finna frekari upplýsingar um notkun okkar á vafrakökum.

Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga

Eirvík vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi almennum heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á einkum við þegar einstaklingar kaupa vörur í verslun okkar eða netverslun.
  • Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög nr. 145/1994.
  • Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins. Þessi heimild á einkum við varðandi innheimtu vanskilakrafna.

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?

Eirvík geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Sem dæmi eru þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.

Frá hverjum safnar Eirvík þínum persónuupplýsingum?

Við söfnum persónuupplýsingum frá þér og í vissum tilvikum eru persónuupplýsingar fengnar með sjálfvirkum hætti, t.d. við notkun heimasíðu okkar. Eirvík er með tengingu við Þjóðskrá varðandi kennitölur til að tryggja að verið sé að vinna með upplýsingar um réttan einstakling í þeim tilvikum sem stofna þarf aðila í kerfi Eirvíkur, s.s. þegar einstaklingar kaupa vörur með ábyrgð.

Hvenær miðlar Eirvík persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila og af hverju? 

Eirvík miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda sem ráðinn er af hálfu Eirvíkur til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu. Í vissum tilvikum geta slíkir aðilar talist vera vinnsluaðilar og gerir Eirvík þá vinnslusamning við viðkomandi aðila í samræmi við kröfur persónuverndarlaga.

Eirvík gæti einnig deilt persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni fyrirtækisins, eins og við innheimtu á vanskilakröfu. 

Ef til þess kemur að vinnsluaðili vinni, þ.m.t. hýsi, gögn fyrir utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES svæðið), þá gætir Eirvík að því að lögmætur grundvöllur sé til staðar samkvæmt persónuverndarlögum.

Eirvík vill benda þér á að þegar þú ferð inn á eða hefur samband við okkur í gegnum samfélagsmiðlasíður okkar, þá gæti verið að veitendur samfélagmiðlaþjónustunna fái aðgang að upplýsingum og hvetjum við þig til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrest 

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Eirvík mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi, þ.m.t. með viðeigandi aðgangsstýringum. 

Komi upp öryggisbrestur sem varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkur brestur hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrestur atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi.

Réttindi þín

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um persónuverndarlögum, átt þú rétt á að: 

  • Fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar fyrirtækið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
  • Fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
  • Persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til, 
  • Eirvík eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
  • Koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
  • Upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, og þá á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðun á sjálfvirkri ákvarðanatöku,
  • Afturkalla samþykki þitt um að Eirvík megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega beiðni á eirvik(hjá)eirvik.is. Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við innan mánaðar frá móttöku beiðni. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.

Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.

Frekari upplýsingar 

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við okkur: 

Eirvík ehf.
Suðurlandsbraut 20
108 Reykjavík
Netfang: eirvik(hjá)eirvik.is

Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Eirvíkur

Persónuverndaryfirlýsing Eirvíkur er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var yfirlýsingin uppfærð þann 25.08.2021.

Þessi síða notar fótspor (e.cookies) til að muna eftir þér og bæta upplifun þína af síðunni. Þú getur lesið þér til um fótspor og svipaða tækni hérna. Annars samþykkir þú notkun okkar á fótsporum eins og þau eru sett núna.